Miðbær Hraun vestur, deiliskipulag.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1750
2. september, 2015
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð SBH frá 25.ágúst sl. Deiliskipulag reits sem afmarkast af Austurgötu, Reykjavíkurvegi, Álfaskeiði, lóðamörkum húsa austan Hverfisgötu og Læknum. Að hluta til nýtt skipulag og að hluta til endurskoðun deiliskipulags Miðbæjar 1981. Deiliskipulag Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund verði fellt inn í deiliskipulagið. Skipulagið var auglýst skv. skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að svörum við innkomnum athugasemdum.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulags- og byggingarsviðs, samþykkir deiliskipulagið skv. 41. gr skipulagslaga 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkir deiliskipulag fyrir Miðbær Hraun vestur og að málinu verði lokið skv. 42 gr. skipulagslaga nr 123/2010."
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu skipulags- og byggingarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.