Vatnsendakrikar í Heiðmörk, kalt vatn, nýting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1705
22. maí, 2013
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð UMFRAMH frá 15.maí sl. Lagt fram bréf frá Orkustofnun varðandi nýtingu á kölduvatni í Vatnsendakrikum í Heiðmörk dags 24. apríl 2013.
Hafnarfjörður hefur nýtt sjálfrennandi vatn úr Kaldárbotnum síðan 1918 eða í 95 ár. Kaldárbotnar eru náttúrulegar lindir með fyrsta flokks drykkjarvatni sem veita fyrirtækjum og 27.000 íbúum Hafnarfjarðar neysluvatn án þess að utanaðkomandi orku sé þörf. Vatnsbólin í Kaldárbotnum eru í hæsta gæðaflokki, sjálfbær og órofinn hluti af þeirri jákvæðu ímynd sem er á gæðum drykkjarvatns í Hafnarfirði. Nú þegar liggja fyrir sterk rök fyrir því að dæling Orkuveitu Reykjavíkur og Vatnsveitu Kópavogs í Vatnsendakrikum hafi áhrif á grunnvatnshæð í Kaldárbotnum. Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar getur ekki með nokkru móti fallist á að Orkustofnun heimili aukna vinnslu vatns í Vatnsendakrikum. Umhverfis- og framkvæmdarráð vísar erindinu til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Svar

Málinu frestað til næsta fundar.