Ásvallabraut tenging Valla og Áslands, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1800
14. febrúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
10. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs 9. febrúar s.l. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 8. nóvember 2017 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 i tengslum við gerð nýs deiliskipulags við Ásvallabraut. Skv. ákvæðum skipulagslaga 2. mgr. 30. gr þarf að kynna tillöguna áður en hún er samþykkt til auglýsingar. Búið er að kynna lýsingu fyrir almenningi og hagsmunaaðilum og fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunnar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur og að þær verði auglýstar skv. 1. mgr. 36. gr skipulagslaga 123/2010 og skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: 'Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 og hún auglýst í samræmi við 1. mgr. 36.gr. laga 123/2010. Einnig er samþykkt að auglýsa tillögu deiliskipulagi aftur samhliða framangreindri aðalskipulagsbreytingu ásamt breytingum á skipulagsmörkum við Ásland 3 og Hlíðarþúfum skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010.
Svar

Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir. Adda María svarar andsvari.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir með 7 atkvæðum gegn 4 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 og að hún verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 36.gr. laga 123/2010. Einnig er samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi aftur samhliða framangreindri aðalskipulagsbreytingu ásamt breytingum á skipulagsmörkum við Ásland 3 og Hlíðarþúfum skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010.

Adda María gerir grein fyrir atkvæði sínu.