Aðalskipulag Hafnarfjarðar Suðurbær, breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1698
27. febrúar, 2013
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð SBH frá 19.febr.sl. Tekin fyrir að nýju tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á aðalskipulaginu hvað varðar Hringbraut 17 og lóðir kring um St:Jósefsspítala. Tillagan var samþykkt í auglýsingu skv. 30. og 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010, en við nánari athugun hefur komið í ljós að engir hagsmunir skerðast og er því hægt að fara með tillöguna sem óverulega breytingu á aðalskipulagi sk. 2. mgr. 36. greinar sömu laga. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að farið verði með aðalskipulagsbreytinguna sem óverulega skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að farið verði með aðalskipulagsbreytingu fyrir Suðurbæ Hafnarfjarðar dags. 27.11.12 sem óverulega skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.