Álagning sveitarsjóðsgjalda 2013
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1693
5. desember, 2012
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda árið 2013 ásamt reglum um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum í Hafnarfirði 2013 og reglum um styrki vegna fasteignaskatts félagasamtaka 2013.
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri tók til máls. Þá Geir Jónsson. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Geir Jónsson svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 6 atkvæðum eftirfarandi tillögu um álagningu fasteignagjalda árið 2013. 5 sátu hjá.

"Álagning fasteignaskatts og lóðarleigu fyrir árið 2013

Fasteignaskattur sem reiknast af heildarfasteignamati húsa og lóða.
A- Skattflokkur - íbúðarhúsnæði, hesthús og sumarbústaðir - 0,30%
B- skattflokkur - opinberar byggingar sbr. reglugerð 1160/2005 - 1,32%
C- skattflokkur - atvinnuhúsnæði - 1,65%
Lóðarleiga sem reiknast af fasteignamati lóðar:
A- Skattflokkur - íbúðarhúsnæði, hesthús og sumarbústaðir - 0,4%
B- skattflokkur - annað húsnæði sbr.3 gr. reglugerðar 1160/2005 - 1,30%
C- skattflokkur - atvinnuhúsnæði - 1,30%

Álagningin byggir á fasteignamati eigna samkvæmt Fasteignaskrá Íslands 31.desember 2012.

Almennir gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2013 eru tíu, fyrsti gjalddaginn er 15. janúar 2013 en eftir það 1. dagur hvers mánaðar frá mars til nóvember og eindagi 30. dögum síðar. Gjalddagi fasteignagjalda, að lægri fjárhæð en 25.000 kr. er 1. febrúar 2013. Gjalddagar fasteignagjalda, sem lögð eru á nýjar eignir á árinu, eru jafn margir og almennu gjalddagarnir sem eftir eru ársins þegar álagning fer fram.
Fasteignaskattur og lóðarleiga er lögð á með heimild í lögum nr. 4/1995 með síðari breytingum.

Gjaldendur sem greiða fasteignagjöld ársins að fullu fyrir 16. febrúar 2013 fá 5% staðgreiðsluafslátt."

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 6 atkvæðum framlagðar reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- örorkulífeyrisþegum í Hafnarfirði 2013. 5 sátu hjá.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 6 atkvæðum framlagðar reglur um styrki vegna fasteignaskatts félagasamtaka 2013. 5 sátu hjá.