Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1686
12. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð BÆJH frá 6.sept.sl. Lagt fram erindi Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga dags. 29. ágúst 2012 með tillögu sem stjórn sjóðsins samþykkti varðandi endurgreiðsluhlutfall vegna lífeyrisgreiðslna. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddan lífeyrir Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar verði 66%."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Þá Kristinn Andersen. Annar varaforseti, Margrét Gauja Magnúsdóttir, tók við fundarstjórn. Guðmundur Rúnar Árnason tók til máls. Kristinn Andersen kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Kristinn Andersen kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Kristinn Andersen kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.