Steinhella 10 deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1686
12. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð SBH frá 4.sept. sl. Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á deiliskipulagi Hellnahrauns 1 hvað varðar lóðina Steinhellu 10. Skipulagið var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulags- og byggingarsviðs við athugasemdum, samþykkir deiliskipulagið og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010 skipulagslaga. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytingu á Hellnahrauni 1, hvað varðar lóðina Steinhellu 10, dags. 11. júní 2012 og að afgreiðslu verði lokið skv. 41. gr. laga nr. 123/2100 skipulagslaga."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.