Hafnarstjórn - 1411
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3326
6. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 21. 8. sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 19.1. 1109041 - Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2012 Hafnarstjóri lagði fram Rekstraryfirlit fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins 2012. Ennfremur lagði hann fram yfirlit yfir skipakomur og vörumagn fyrir sama tímabil. Ljóst er að að rekstrarstaða er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2012 og skipakomur og vörumagn eru áþekk og sl. ár. 19.2. 1112201 - Óseyrarbraut 29, lóða- og byggingamál Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi Óseyrarbraut 29. 19.3. 1112202 - Óseyrarbraut 31, lóða- og byggingamál Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi Óseyrarbraut 31. 19.4. 1112128 - Umhverfisstefna Hafnarfjarðarhafnar Hafnarstjóri fór yfir vinnu hafnarstarfsmanna við mótun umhverfisstefnu hafnarinnar og hve langt hún er komin.
Einnig greindi hann frá áætlun um móttöku úrgangs frá skipum, sem verið er að leggja lokahönd á. Hafnarstjórn samþykkti að með ársreikningi næsta árs fylgi kafli um umhverfisstefnu hafnarinnar og framkvæmd hennar.
Jafnframt samþykkti hafnarstjórn að fela Bjarna Sveinssyni að ræða við Matís um hreinlæti við fiskflutninga á hafnarsvæðum.
Samþykkt að fela hafnarstjóra að taka saman minnisblað með tillögum um næstu skref í þessum málum. 19.5. 1011392 - Verkefni tengd hafnsækinni starfsemi. Hafnarstjóri fór yfir stöðu nokkurra verkefna, sem miða að því að styrkja viðskipti hafnarinnar.
Hann fór einnig yfir bakslag í ákveðnum verkefnum vegna ytri aðstæðna. 19.6. 1003131 - Frystigeymsla Frestað 19.7. 0702149 - ESA, kæra Hafnarfjarðar Frestað 19.8. 1006284 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar heildarendurskoðun. Frestað 19.9. 0805038 - Hafnar- og lóðarsamningur, endurskoðun Frestað 19.10. 1107199 - Áhættumat starfa hjá Hafnarfjarðarhöfn Frestað 19.11. 1011004 - Gasfélagið ehf., framlenging lóðarleigusamnings Frestað