Vesturgata 8, gistiheimili
Vesturgata 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 298
4. maí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Princess Annie E. Björnsson sækir um gistileyfi fyrir Vesturgötu 8. Sjá meðfylgjandi gögn. Áður lagt fram minnisblað sviðsstjóra. Skipulags- og byggingarráð taldi 03.04.12 að skoða þyrfti öryggiskröfur betur. Mikilvægt væri að þeim möguleika sé haldið opnum að Byggðasafnið geti nýtt húsið síðar meir og breytingar sem gerðar verða á húsnæðinu séu ekki óafturkræfar.
Svar

Sviðsstjóri gerði grein fyrir málinu en vék að því loknu af fundi.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. (Þ.m.t. samþykki slökkviliðs.)
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122856 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027605