Lóðaverð, endurskoðun 2012
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1681
9. maí, 2012
Annað
‹ 8
9
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.maí sl. Tekið fyrir að nýju. Áður frestað á fundi bæjarstjórnar 25.apríl sl. Til umræðu.
Svar

Forseti bæjarstjórnar las upp svohljóðandi framlagða tillögu um verð íbúðahúsalóða og breytingar á samþykkt um gatnagerðargjald:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að verð íbúðahúsalóða verði sem hér segir:
Einbýlishúsalóð 10.531.620 kr. 220m2 hús
Raðhúsalóð 8.616.780 kr. 180m2 hús
Parhúsalóð 9.574.200 kr. 200m2 hús
Fjölbýli 4-8 íbúðir 3.789.788 kr. hver íbúð, heildarstærð húss 950m2
Fjölbýli 9 íbúðir og fleiri 3.191.400 kr. hver íbúð, heildarstærð húss 1.200m2
Verðið er lágmarksverð miðað við ofangreindar stærðir og uppfærist mánaðarlega í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu."

Byggingarvísitala aprílmánaðar 2012 er 113,4.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að "Samþykkt um gatnagerðargjald í Hafnarfirði" breytist sem hér segir:

Grunnur gatnagerðargjalds. 4. gr.
Við greinina bætist ný málsgrein: Af atvinnuhúsnæði greiðist að lágmarki 75% af byggingarmagni samkvæmt nýtingarhlutfalli í deiliskipulagi.

Almenn lækkunarheimild. 5. gr.
3. liður breytist sem hér segist:
Af millilofti sem liggur milli hæðaskila eða hæðaskila og þakflatar í atvinnuhúsnæði í óskiptu eignarhaldi, skal greiða 10% af fermetragjaldi."


Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og lagði fram f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks svohljóðandi breytingartillögu:

"Lóðaverð verði fært niður á kostnaðarverð og við bætist 10% álag vegna ófyrirséðs kostnaðar. Miðað við framkomnar forsendur þá mun verð á íbúða- og atvinnuhúsnæðislóðum lækka umtalsvert frá því sem nú er og færast í átt til þess verðgrunns sem notaður var fyrir verðhækkanir síðustu ára.

Greinargerð:
Verðlagning á fullgerðum lóðum í Hafnarfirði hefur undanfarin ár tekið mið af markaðsverði . Farin var sú leið að hækka verulega verð á lóðum á árunum 2004 - 2007. Svokallað "eftirmarkaðsverð" var meðal annars lagt til grundvallar og veruleg hækkun sett fram í tengslum við stöðu markaðarins á þeim tíma. Ef miðað er við stöðu á markaðnum í dag og magn lóða sem bærinn hefur yfir að ráða er eðlilegt að lækka nú verð til samræmis við breyttar aðstæður á byggingamarkaði. Mikilvægt er að bæjarfélagið lagi sig að þessum breyttu aðstæðum, leiðrétti lóðaverð og stuðli þannig að því að fjölga íbúum og efla atvinnu í sveitarfélaginu.
Grunnforsenda verðlagningar á lóðum var hér á árum áður miðuð við útlagðan kostnað við gatnagerð. Með því að hverfa aftur til þess fyrirkomulags verður best stuðlað að nýtingu þeirrar fjárfestingar sem lagt hefur verið í gatnagerð á nýbyggingarsvæðum í Hafnarfirði og horfið yrði aftur til þeirrar verðlagningar sem tíðkaðist fyrir verðhækkanir síðustu ára,
Áhersla er lögð á að áður en til úthlutunar á Völlum 7 kemur verði unnir nýir skilmálar sem miði að því að hverfið byggist upp í ákveðnum áföngum með það að leiðarljósi að unnt verði að stýra uppbyggingu á þjónustu í hverfinu á sem hagkvæmastan máta samhliða uppbygginu íbúðahúsnæðisins.
Einnig er mikilvægt að skilmálar lóðaleigusamninga verði uppfærðir og endurskoðaðir til samræmis við ríkjandi aðstæður í dag."

Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),
Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).


Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls. Kristinn Andersen kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðmundar Rúnars Árnasonar. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Þór Sæmundsson tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemd. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Eyjólfs Sæmundssonar. Gunnar Axel Axelsson tók til máls undir fundarsköpum. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir fundarsköpum. Gunnar Axel Axelsson tók til máls öðru sinni undir fundarsköpum.

Gert stutt fundarhlé.

Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og lagði fram f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks svohljóðandi viðaukatillögu við fyrri breytingartillögu:
"Lóðaverð verði fært niður á kostnaðarverð í samræmi við útlagðan kostnað við gatnagerð og við bætist 10% álag vegna ófyrirséðs kostnaðar. Miðað við framkomnar forsendur þá mun verð á íbúða- og atvinnuhúsnæðislóðum lækka umtalsvert frá því sem nú er og færast í átt til þess verðgrunns sem notaður var fyrir verðhækkanir síðustu ára."

Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),
Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).

Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni. Annar varaforseti, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, tók við fundarstjórn. Helga Ingólfsdóttir tók til máls. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Guðmundur Rúnar Árnason kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason kom að andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Guðmundur Rúnar Árnason kom að stuttri athugasemd. Helga Ingólfsdóttir kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari við fyrri ræðu Helgu Ingólfsdóttur. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Eyjólfur Þór Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir tók til máls. Guðmundur Rúnar Árnason kom að andsvari.

Forseti bar upp til afgreiðslu breytingartillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks með áorðnum breytingum. Tillagan var felld með 6 atkvæðum, 5 greiddu atkvæði með tillögunni.

Forseti bar upp til afgreiðslu framlagða tillögu um verð íbúðahúsalóða og breytingar á samþykkt um gatnagerðargjald. Tillagan var samþykkt með 6 atkvæðum, 5 greiddu atkvæði á móti tillögunni.

Rósa Guðbjartsdóttir f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks kom að svohljóðandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma það að meirihlutinn í bæjarstjórn samþykki ekki tillögu um viðameiri lækkun á lóðaverði en upprunalegar tillögur gera ráð fyrir. Hér með sýnir meirihlutinn það í verki hver afstaða hans er í raun og veru til atvinnulífsins og annarra rekstraraðila. Í þeirri afar erfiðu fjárhagsstöðu sem bærinn er í þarf bæjarfélagið að gera allt hvað hægt er til að auka atvinnu og fjölga íbúum. Í tillögu Sjálfstæðisflokksins er er fyrst og fremst verið að bregðast við gjörbreyttum aðstæðum á byggingamarkaði og reyna að stuðla þannig að fjölgun íbúa og eflingu atvinnulífsins í bænum. Áframhaldandi þjónustuskerðing, niðurskurður og hækkanir á gjöldum blasir við verði ekki gripið til aðgerða sem gefa fyrirtækjum og fjölskyldum aukið svigrúm til að hefja nýja uppbyggingu í bæjarfélaginu."

Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),
Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).


Gunnar Axel Axelsson f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna kom að svohljóðandi bókun:
"Fyrir rúmu ári síðan var sett af stað sérstök vinna í því skyni að skoða hvernig bæjarfélagið gæti stutt við og hvatt til uppbyggingar í bænum. Í þeim tilgangi var m.a. settur á stofn starfshópur á vegum bæjarráðs til þess að fara yfir og endurmeta lóðarverð. Einnig var settur á stofn starfshópur skipaður fulltrúum úr skipulags-og byggingarráði og framkvæmdaráði til að skoða kosti þess að endurmeta eða uppfæra deiliskipulag í næsta nýbyggingarsvæði Hafnarfjarðar, Völlum 7. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 var ennfremur samþykkt að veita alls 13 milljónum í markaðsetningu bæði atvinnu- og íbúðarhverfa, tillaga sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sáu ekki ástæðu til að taka undir og greiddu atkvæði gegn.
Tillaga bæjarráðs um breytingar á lóðaverði byggir á ítarlegri greiningu starfshóps um lóðarverð sem í áttu sæti fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn. Ekki hefur verið uppi ágreiningur um niðurstöður starfshópsins, né þá tillögu um lóðarverð sem á þeim byggja. Það sætir því nokkurri furðu að nú aðeins nokkrum klukkustundum fyrir fund bæjarstjórnar skuli koma fram tillögur frá fulltrúum sjálfstæðisflokksins sem stangast á við tillögur bæjarráðs.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna telja framkomna tillögu Sjálfstæðisflokkisins fullkomlega óábyrga. Meirihlutiinn telur rangt að taka ekki tilliti til gæða þjónustuuppbyggingar í hverfum bæjarins, sem um leið er forsenda raunhæfra áætlana um bæði rekstur og vöxt bæjarfélagsins."

Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign), Guðmundur Rúnar Árnason (sign), Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign),
Gunnar Axel Axelsson (sign), Eyjólfur Sæmundsson (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign).

Valdimar Svavarsson tók sæti á fundinum kl. 17:45. Helga Ingólfsdóttir vék af fundi kl. 17:45. Í hennar stað var mætt Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir.