Fundargerðir 2012, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1685
29. ágúst, 2012
Annað
‹ 5
6
Fyrirspurn
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22.ágúst sl. a. Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 10.júlí sl. b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 29.júní sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 20.ágúst sl. Fundargerð bæjarráðs frá 23.ágúst sl. a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 9.ágúst sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.ágúst sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 22.ágúst sl.
Svar

Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 5. lið - Áslandsskóli, tómstundamiðstöð (félagsmiðstöð/frístundaheimili) í fundargerð fræðsluráðs frá 20. ágúst sl. Geir Jónsson og Kristinn Andersen tóku til máls undir sama lið. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Kristinn Andersen svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni. Kristinn Andersen svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd. Kristinn Andersen kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls undir fyrrgreindum lið í fundargerð fræðsluráðs frá 20. ágúst sl. Geir Jónsson tók til máls öðru sinni undir títtnefndum 5. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 20. ágúst sl. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir sama lið og að auki undir fundargerð bæjarráðs frá 23. ágúst sl. varðandi fyrirspurn sjálfstæðismanna vegna starfsleyfis menningar- og ferðamálafulltrúa Hafnarfjarðarbæjar. Fyrsti varaforseti, Kristinn Andersen, tók við fundarstjórn. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Forseti bæjarstjórnar tók við fundarstjórn að nýju. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Guðfinna Guðmundsdóttir vék af fundi kl. 16. Í hennar stað mætti Margrét Gauja Magnúsdóttir. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Rósa Guðbjartsdóttir svarað andsvari.