Endurfjármögnun lána, upplýsingalög, úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1685
29. ágúst, 2012
Annað
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Þá tók Rósa Guðbjartsdóttir til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Krstinn Andersen tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Geir Jónsson tók til máls. Þá Helga Ingólfsdóttir, Eyjólfur Sæmundsson. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni. Hörður Þorsteinsson vék af fundi kl. 15:00. Í hans stað mætti Gunnar Axel Axelsson. Geir Jónsson kom að andsvari við fyrri ræðu Eyjólfs Sæmundssonar. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Geir Jónsson kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Eyjólfs Sæmundssonar. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls og lagði fram f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna svohljóðandi bókun:

"Niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál var lögð fram í bæjarráði 26. júlí s.l. á fyrsta fundi ráðsins eftir að úrskurðurinn barst bænum. Að beiðni Depfa var farið fram á frestun á fullnustu úrskurðarins svo að Depfa gæfist kostur á að gæta réttar síns fyrir nefndinni og styðja afstöðu sína með eigin rökum. Eins og fram kemur með skýrum hætti í skilmálaskjali dagsettu 5. desember 2011 gerði skilanefnd Defpa kröfu um fullan trúnað vegna hagsmuna sinna. Hafnarfjarðarbær var ekki sammála þeirri kröfu en á grundvelli hagsmuna bæjarins og bæjarbúa var ákveðið að ganga að þeirri kröfu. Hafnarfjörður hefur því ekki aðra hagsmuni í málinu en þá a standa við gefið loforð við viðsemjendur sína.
Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna úrskurðar Úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem lögð var fram á fundi bæjarráðs 23. ágúst s.l. verður svarað á næsta reglulega fundi bæjarráðs sem haldinn verður 6. september n.k."
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign), Guðmundur Rúnar Árnason (sign), Guðfinna Guðmundsdóttir (sign),
Gunnar Axel Axelsson (sign), Eyjólfur Sæmundsson (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign).

Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og lagði fram f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks svohljóðandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir undrun sinni á ummælum bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar hér í dag um fagmennsku Landsbanka Íslands í aðdraganda endurfjármögnunar Hafnarfjarðarbæjar sl. haust þegar upp úr endurfjármöngunarviðræðum innanlands flosnaði. Hér á þessum fundi hefur því verið lýst yfir af fulltrúum meirihlutans að skilyrði og tilboð Landsbankans hafi verið sett fram í fullkomnu ábyrgðarleysi og hafi verið fáranlegt. Þetta eru tíðindi!
Þá er það með ólíkindum hvernig því var haldið leyndu fyrir bæjarbúum og bæjarstjórn að Landsbankinn hefði sett það sem skilyrði fyrir endurfjármögnun að þrír milljarðar fengjust niðurfelldir af skuldunum við Depfa sl. haust þegar upp úr endurfjármögnunarviðræðum hér var hætt i en látið var að því liggja að aðrar ástæður hefðu legið þar að baki. Þetta er ekki síst með ólikindum þar sem meirihlutinn hafði á sama tíma gert lítið úr málflutningi sjálfstæðismanna sem var á svipuðum nótum og skilyrðið sem Landsbankinn setti.
Einnig lýsa bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins yfir rmikilli óánægju með vinnubrögð meirihlutans í bæjarstjórn vegna skorts á upplýsingagjöf til bæjarfulltrúa og framgöngu í samskiptum við úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Ekki var upplýst um það á fundi bæjarráðs að bærinn hefði reynt að fá réttaráhrifum úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál frestað svo unnt yrði að höfða mál til ógildingar úrskurðinum. Svo virðist sem bæjaryfirvöld hafi reynt allt hvað hægt var til að birta ekki bæjarbúum upplýsingar um samninginn við Depfa. "
Valdimar Svavarsson (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),
Geir Jónsson (sign) og Helga Ingólfsdóttir (sign).