Hvaleyrarvatn, lóðarleigusamningur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1672
18. janúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð BÆJH frá 12.janúar sl. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar eftirfarandi erindi til bæjarráðs, en bendir jafnframt á að erindið krefst breytingar á deiliskipulagi:
Hreiðar Sigurjónsson f.h. St. Georgsgildisins í Hafnarfirði, leitar eftir staðfestingu á landamerkjum og lóðarleigusamningi eða samningi um afnot lands í kringum skátaskálann við Hvaleyrarvatn, sbr. samþykkt bæjarstjórnar þann 5. október 1965.
Sviðsstjóri skipulags- og byggingarmála gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta St. Georgsgildi í Hafnarfirði lóð við Hvaleyrarvatn í samræmi við fyrirliggjandi samning um afnot og önnur gögn."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.