Sléttuhlíð, svæði fyrir býflugur
Sléttuhlíð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 455
10. apríl, 2013
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur tölvupóstur dags. 5. apríl 2013 þar sem kvartað er yfir ónæði frá býflugnabúi, bæði eru menn hræddir við flugurnar og eins eru sumir með ofnæmi. Skipulags- og byggingarráð veitti til eins árs til reynslu þann 20. september 2011.
Svar

Eiganda býflugnabúsins er gert að færa búið inná sína eigin lóð vegna þessara ábendinga.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 123122 → skrá.is
Hnitnúmer: 10034221