Endurfjármögnun lána
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3313
22. mars, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillag um óháða úttekt.
Svar

Bæjarráð samþykkir að láta uppfæra mat á fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar og stofnana með tilliti til getu bæjarins til að standa við fjárhaglegar skuldbindingar sínar, sem framkvæmd var á árinu 2011 og lagt var fyrir bæjarráð 9. mars 2011. Líkt og í áður framkvæmdri greiningu skal tekið tillit til þróunar helstu stærða í rekstri bæjarsjóðs og annarra breytinga sem orðið hafa á þeim forsendum sem lágu til grundvallar fyrra mati.