Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, deiliskipulag, íþróttasvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1750
2. september, 2015
Annað
Fyrirspurn
3. liður úr fundargerð SBH frá 1.9.sl. Tekið fyrir að nýju erindi AÍH dags. 21. mars 2014 þar sem AÍH lagði inn tillögu vegna deiliskipulags fyrir akstursíþróttir við Krýsuvíkurveg. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu var send í auglýsingu og lauk athugasemdarfresti 24. nóvember sl. Athugasemdir bárust og var tillagan samþykkt í Skipulags- og byggingarráði 19.05.15 og bæjarstjórn Hafnarfjarðar 27.05.15 ásamt samantekt Skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum og tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svörum við þeim. - Í ljós kom hins vegar að formgalli var á fyrri auglýsingu og var hún því auglýst að nýju með athugasemdafresti til 29.07.15. Engar athugasemdir bárust. - Í áliti Skipulagsstofnunar í tölvupósti dags. 30.07.15 kom fram að 'samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga væri ekki skylt að taka tillöguna fyrir að nýju í sveitarstjórn en í erindi til stofnunarinnar þurfi að koma fram að við fyrri auglýsingu hafi borist athugasemdir sem hafi verið svarað.' Í símtali við Skipulagsstofnun 31.08.15 er hins vegar gerð krafa um það tillagan verði tekin til umfjöllunar að nýju. Auglýsingatíma er nú lokið og engin athugasemd barst í þessari atrennu, hins vega bárust athugasemdir á fyrri stigum málsins og hefur þeim verið svarað.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir skipulagið með áorðnum breytingum skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og að afgreiðslu þess verði lokið skv. 42. grein sömu laga.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: 'Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag fyrir íþróttasvæði Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar dags. 18.06.2015 skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og að afgreiðslu þess verði lokið skv. 42. grein sömu laga.'
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu skipulags- og byggingarráðs með 11 samhljóða atkvæði.