Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, deiliskipulag, íþróttasvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 354
23. september, 2014
Samþykkt
‹ 9
10
Fyrirspurn
Tekið upp að nýju, erindi AÍH dags. 21. mars 2014 þar sem AÍH leggur inn tillögu vegna deiliskipulags fyrir akstursíþróttir við Krýsuvíkurveg. Erindinu var frestað til gildistöku nýs aðalskipulags. Lögð fram umhverfisskýrsla dags. x.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan ásamt umhverfisskýrslu verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki er talin þörf á að vinna skipulagslýsingu, þar sem allar forsendur liggja fyrir í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi akstursíþróttasvæðis AÍH við Krýsuvíkurveg ásamt umhverfisskýrslu verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010."