Lausar lóðir og verð 2011
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1663
31. ágúst, 2011
Annað
Fyrirspurn
4. liður úr fundargerð BÆJH frá 25.ágúst sl. Tekið fyrir að nýju.
Lögð fram fundargerð frá 8. ágúst sl. með tilboðum í eftirfarandi lóðir í Hafnarfirði: Hamarsbraut 16, Skógarás 1 og Skógarás 3.
Lagðar fram umsagnir fjármálastjóra og skipulags- og byggingarsviðs. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn samþykkir að úthluta Ólöfu Ragnarsdóttur og Þresti Valdimarssyni lóðinni Hamarsbraut 16 í samræmi við fyrirliggjandi útboðsgögn og nánari skilmála skipulags- og byggignarfulltrúa."
Bæjarráð hafnar tilboðum í lóðirnar Skógarás 1 og 3.
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu bæjarráðs.