Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, Holtsgöng
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1691
7. nóvember, 2012
Annað
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð SBH frá 30.okt. sl. Tekið fyrir erindi Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins dags. 27.10.12 sem sendir breytingartillögu að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðinsins, Holtsgöng, breytingar á gatnaskipulagi og breytingar á byggingarmagni á byggðasvæði 5, innkomnar athugasemdir og álit fagráðs til afgreiðslu í sveitarstjórnum skv. 2. mgr. 25. greinar skipulagslaga.
Með vísan í fyrri umsögn varðandi þetta saman erindi og umsögn fagráðs Samvinnunefndar um svæðisskipulag telur SBH ekki ástæðu til að gera athugasemdir við erindi Reykjavíkurborgar um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem varða annars vegar breytingar á byggingarmagni á svæði 5. og hins vegar niðurfellingu fyrirhugaðra Holtsgangna. Umferðaútreiknignar (VSÓ) sýna glögglega að breytingarnar munu ekki hafa teljandi áhrif á umferð og er því ekki í andstöðu við og markmið svæðisskipulagsins. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að Holtsgöngin myndu létta á umferð um höfuðborgina nema að mjög afmörkuðu leyti og gerir SBH því ekki athugasemdir við það að göngin verði tekin út af aðalskipulagi. Hins vegar skal bent á að gera þurfi á aðalskipulags- og deiliskipulagsgrunni ráð fyrir mótvægisaðgerðum varðandi aukið byggingarmagn á svæðinu sem óhjákvæmilega mun hafa í för með sér aukna umferð (akandi, gangangdi, hjólandi). Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögurnar með þremur atkvæðum en fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá. Meirihluti skipulags- og byggingarráðs gerir eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: " Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi breytingartillögur að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins varðandi brottfall Holtsgangna og aukningu byggingarmagns á reit 5."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Kristinn Andersen kom að andsvari við fyrri ræðu Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Geir Jónsson tók til máls. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari. Geir Jónsson svaraði andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari öðru sinni.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 6 atkvæðum. 1 greiddi atkvæði á móti og 4 sátu hjá.