Kirkjugarður stækkun, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1691
7. nóvember, 2012
Annað
Fyrirspurn
4. liður úr fundargerð SBH frá 30.okt.sl. Tekin til umræðu deiliskipulagsvinna vegna stækkunar kirkjugarðsins við Kaldárselsveg. Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagslýsing verði kynnt og gerir eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir Kirkjugarða Hafnarfjarðar norðurhluta samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 123/2010."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.