Fundargerðir 2011, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1665
28. september, 2011
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð fjölskylduráðs frá 21.sept. sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 14.sept.sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 21.sept. sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 19.sept.sl. Fundargerð bæjarráðs frá 22.sept.sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 20.sept. sl. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 13.sept. sl. c. Fundargerð stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 1.sept. sl. d. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 26.ágúst sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 20.sept. sl.
Svar

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls undir 6. lið - Endurfjármögnun lána - í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Geir Jónsson kom að andsvari við fyrri ræðu Guðmundar Rúnars Árnasonar. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Geir Jónsson kom að andsvari öðru sinni. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 6. lið - Hjúkrunarheimili á Völlum - í fundargerð umhverfis - og framkvæmdaráðs frá 21. september sl. og 6. lið í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Guðmundur Rúnar Árnason kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Helgu Ingólfsdóttur. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson tók til máls undir 6. lið í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Kristinn Andersen kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Geir Jónsson kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Geir Jónsson kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls undir 6. lið í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Valdimar Svavarsson kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir 6. lið í fundargerð bæjarráðs 22. september sl. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls undir 6. lið í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Valdimar Svavarsson tók til máls undir 6. lið í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Gunnar Axel Axelsson tók til máls undir sama lið. Valdimar Svavarsson kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni. Geir Jónsson tók til máls undir títtnefndum 6. lið í fundargerð bæjarráðs frá 22. september sl. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls undir sama lið. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson tók til máls undir sama lið. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls undir sama lið.

Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að þar sem ýmsar forsendur í fjárhagsúttekt þeirri sem liggur til grundvallar endurfjármögnun lána sveitarfélagsins eru brostnar, sé erfitt að sjá hvernig bærinn eigi að geta staðið undir þeirri greiðslubyrði sem fyrirhugaðri endurfjármögnun mun fylgja næstu áratugina.

Því ber að leita aftur til skilanefndar DEPFA bankans og reyna að endursemja við þrotabúið jafnhliða því sem unnið er að öðrum kostum. Samhliða þarf heildstæð áætlun að liggja fyrir um fjárhagslega endurskipulagningu sem tekur mið af greiðslugetu bæjarins. Slík áætlun verður að taka mið af þeirri lögbundnu þjónustu sem sveitarfélaginu ber að veita íbúum sínum og tekjustofnum sveitarfélagsins er ætlað að standa undir. Vert er að benda á að á síðustu 18 mánuðum hefur kostnaður farið um 1500 milljónum framúr áætlunum og það er óásættanlegt

Sveitarfélög hafa áður þurft að vinna sig út úr miklum fjárhagsvanda bæði hérlendis sem erlendis en Hafnarfjörður skilur sig hins vegar að frá öðrum aðilum í sams konar vanda með því að núverandi meirihluti Samfylkingarinnar og Vinstri grænna neitar að horfast í augu við mistökin sem gerð hafa verið á síðustu kjörtímabilum og taka raunverulega á fjárhagsvandanum með hagsmuni bæjarbúa og allra kröfuhafa að leiðarljósi."

Valdimar Svavarsson (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),
Geir Jónsson (sign) og Helga Ingólfsdóttir (sign)

Gunnar Axel Axelsson tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna:
"Mikilvægt er að opinber stjórnsýsla sé opin og gagnsæ og að almenningur hafi eðlilegan aðgang að gögnum og upplýsingum. Í einstaka tilfellum, vegna einka- eða almannahagsmun, samkvæmt lögum eða eðli máls, getur hins vegar verið mikilvægt að trúnaður sé um þær upplýsingar sem lagðar eru fram á lokuðum fundum ráða og nefnda. Um þagnarskyldu þá er hvílir á kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum er fjallað í 3. mgr. 32.gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG harma að upplýsingar sem lagðar voru fram í bæjarráði þann 25. ágúst sl. sem trúnaðargögn, hafi komist í almenna umferð. Slíkt er alvarlegt brot á samþykktum Hafnarfjarðarkaupstaðar (gr. 35., 39., og 48.) og á 6.gr í Siðareglum bæjarfulltrúa frá 19.maí 2010. Slík vinnubrögð eru óábyrg, draga út trausti og veikja anda góðrar samvinnu sem hingað til hefur ríkt um lausn þessa máls meðal fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Það er því ljóst að birting þessara gagna þjónar ekki hagsmunum Hafnarfjarðar. Þvert á móti er birting þeirra til þess fallin að draga úr trúverðugleika og skapa óvissu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG ítreka bókun sína frá síðasta bæjarstjórnarfundi, þar sem fram kemur að gerðar hafa verið greiningar af óháðum aðilum á greiðslugetu og fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar sem sýna að bærinn hefur fulla burði til að standa undir þeirri endurfjármögnun sem fyrir stendur.
Í ljósi þeirra yfirlýsinga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að hefja skuli viðræður við fulltrúa þeirrar skilanefndar sem fer með málefni Depfa banka, þá skal það áréttað að viðræður hafa staðið yfir á milli fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar og fyrrgreindra aðila um langt skeið, eins og fulltrúum sjálfstæðislfokksinns í bæjarráði er full kunnugt um."

Sigríður Björk Jónsdóttir (sign), Gunnar Axel Axelsson (sign), Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign),
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign), Guðmundur Rúnar Árnason (sign), Eyjólfur Sæmundsson (sign).