Lónsbraut 66, byggingarstig og notkun
Lónsbraut 66
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 515
18. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lónsbraut 66 sem er á hafnarsvæði er skráð á bst/mst 4 þrátt fyrir að húsið virðist fullbyggt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.11.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 28.02.2012, en frestur var veittur til 20.03.13. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 02.10.13 byggingarstjóra/eiganda skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi mun leggja dagsektir á byggingarstjóra og eigendur í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 verði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121132 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033461