Lónsbraut 6,byggingarstig og notkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 515
18. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 4 (fokhelt) þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og lögboðin lokaúttekt hefur ekki farið fram. Um er að ræða brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010, 9. grein. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 10.08.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Í ljos kom að enginn byggingarstjóri er skráður á verkið. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 20.08.13 eigendum skylt að ráða nýja byggingarstjóra, sem sæki um lokaúttekt inna 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltúi leggja dagsektir á eigendur skv. 56. laga um mannvirki nr. 160/2010 og ábyrg þeirra skv. sömu lögum. Frestur var veittur til 30.10.13, en ekki var staðið við þann frest.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi mun leggja dagsektir á byggingarstjóra og eigendur í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 verði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna.