Breiðhella 16, byggingarstig og notkun
Breiðhella 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 406
25. apríl, 2012
Annað
Fyrirspurn
Breiðhella 16 sem er á iðnaðarsvæði er skráð á bst/mst 4, þrátt fyrir að vera fullbyggt og tekið í notkun. Það vantar lokaúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.11.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Ekki var brugðist við því og boðaði skipulags- og byggingarfulltrúi til lokaúttektar 17.03.2011, sem ekki var lokið þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til endurtekinnar lokaúttektar 16.04.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra var gert skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinnti hann ekki erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Engin viðbrögð voru við boðaðri úttekt.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Þórarinn Þorgeirsson frá og með 1. júní 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203387 → skrá.is
Hnitnúmer: 10095571