Berghella 2, byggingarstig og notkun
Berghella 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 406
25. apríl, 2012
Annað
‹ 6
7
Fyrirspurn
Á lóðinni Berghellu 2 sem er á iðnaðarsvæði eru 3 mhl og allir skráðir á bst 4, mst 8 en hafa verið í notkun nokkur ár. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 14.04.11. Ekki var brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði aftur til lokaúttektar 24.04.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra var skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinnti hann ekki erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Bent var á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Oddgeir Arnar Jónsson frá og með 1. júní 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 188743 → skrá.is
Hnitnúmer: 10074191