Fléttuvellir 1,breyting á deiliskipulagi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 270
15. mars, 2011
Annað
Fyrirspurn
Míla ehf sækir þann 10.11.2010 um leyfi til að gera breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér að leyft verði að reisa 16 m hátt stálmastur við núverandi tækjahús Mílu ehf við Fléttuvelli 1. Áður lögð fram umsögn heilbrigðisfulltrúa Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 22.12.10. Tillagan var auglýst skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 09.03.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar synjar erindinu með vísan til fjölda athugasemda og umsagna sem borist hafa á athugasemdatíma.