Hvaleyrarbraut 26 byggingarkrani
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1652
9. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
15.liður úr fundargerð SBH frá 1.febr. sl. Bergþór Jónsson f.h. Mótáss hf sótti með tölvupósti dags. 10.09.2010 um að fá að staðsetja byggingarkrana á lóðinni í nokkra mánuði til að raða efni á lóðinni. Skipulags- og byggingarráð benti 21.09.10 á að uppsögn kranans sé ekki í tengslum við neina framkvæmdir og ber því að fjarlægja kranann innan tveggja mánaða. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 17.11.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs sem bókaði eftirfarandi á fundi 30.1102010: "Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda kranans skylt að fjarlægja hann innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Lagt fram bréf Gylfa Matthíassonar lóðarhafa Hvaleyrarbrautar 28 dags. 11.01.11. Á síðasta fundi var sviðsstjóra falið að gera tillögu um dagsektir á þessum fundi. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á Mótás ehf kr. 20.000/dag frá og með 1. mars 2011 í samræmi við 56. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010 hafi byggingarkrani ekki verið fjarlægður af lóðinni Hvaleyrarbraut 26 fyrir þann tíma."
Svar

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls. Þá Gunnar Axel Axelsson.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.