Norðurbakki 23, íbúð 0105, brunavarnir.
Norðurbakki 23
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 265
4. janúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Eigandi íbúðar nr. 0105 gerir athugasemd við að flóttaleið vanti og óskar eftir að arkitekt og byggingaraðila verði gert að koma með tillögur til úrlausnar. Umsögn Brunamálastofnunar liggur fyrir. Teikningar að húsinu voru samþykktar af byggingarfulltrúa 14.02.2006 og höfðu þá stimpil Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Skipulags- og byggingarfulltrúi beindi því 01.09.10 til arkitekts og byggingaraðila hússins að gera tillögur til lausnar á málinu innan fjögurra vikna. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 13.10.10 tilmæli sín til arkitekts og byggingaraðila hússins um að skila umbeðnum tillögum innan þriggja vikna. Skipulags- og .byggingarfulltrúi gerði 17.11.10 arkitekt og byggingaraðila hússins skylt að skila umbeðnum tillögum innan þriggja vikna. Yrði ekki brugðist við því mund skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.12.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir arkitekt og byggingaraðila hússins skylt að skila umbeðnum tillögum innan þriggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir arkitekt og byggingaraðila hússins skylt að skila umbeðnum tillögum innan þriggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 200314 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092499