Norðurbakki 23, íbúð 0105, brunavarnir.
Norðurbakki 23
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 557
15. apríl, 2015
Annað
Fyrirspurn
Eigandi íbúðar nr. 0105 gerir athugasemd við að flóttaleið vanti og óskar eftir að arkitekt og byggingaraðila verði gert að koma með tillögur til úrlausnar. Umsögn Brunamálastofnunar liggur fyrir. Teikningar að húsinu voru samþykktar af byggingarfulltrúa 14.02.2006 og höfðu þá stimpil Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Skipulags- og byggingarfulltrúi beindi því 01.09.10 til arkitekts og byggingaraðila hússins að gera tillögur til lausnar á málinu innan fjögurra vikna. tillögur bárust sem skipulags- og byggingarfulltrúi telur leysa málið, og gerði 25.01.11 ÞG-verktökum skylt að sækja um byggingaleyfi fyrir breytingunni og skila gögnum í samræmi við grein 12.2 í byggingarreglugerð innan 2 vikna. Yrði það ekki gert mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 56. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Áður lagt fram bréf ÞG-verktaka dags. 30.01.11. Áður lagt fram álit lögmanns skipulags- og byggingarsviðs og greinargerð skoðunarmanns skipulags- og byggingarsviðs. Skipulags- og byggingarfulltrúi taldi skylt að gera flóttaleið úr svefnherbergi fremur en stofu, en skv. áliti Mannvirkjastofnunar kveður reglugerð ekki á um það. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 25.05.11 fyrirmæli til hönnuðar og byggingarstjóra um gerð flóttaleiðar.
Svar

Skipulags-og byggingarfulltrúi mun leggja dagsektir á byggingarstjóra kr. 20.000 á dag í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 verði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 200314 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092499