Ásvellir 2,Lokaúttekt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 557
15. apríl, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lokaúttekt fór fram 04.09.08 en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggignarfulltrúi gerði 24.10.12 eiganda skylt að boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.06.14 eiganda skylt að boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggignarfulltrúi beita ákvæðum 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar enn fyrirmæli sín. Verði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eiganda kr. 20.000 á dag í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.