Bæjarsjóður við upphaf kjörtímabils, úttekt á stöðu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3274
18. nóvember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohjóðandi bókun: "Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að enn skuli ekki liggja fyrir úttekt á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins sem samþykkt var samhljóða af bæjarstjórn á fyrsta fundi bæjarstjórnar þann 16. Júní síðastliðinn. Að okkar mati er úttektin og næmnigreining hennar lykilatriði til að sjá hver raunveruleg hagræðingar- og tekjuaukningarþörf sveitarfélagsins er við þær erfiðu fjárhagsaðstæður sem Sveitarfélagið er í. Öskum við því eftir því að það verði forgangsatriði hjá fjármálasviði að klára verkefnið í samráði við Capacent sem ráðið var til verksins."

Svar

Lagt fram.