Aðalskipulag Miðbær-Hraun breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 251
11. maí, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekikn til umræðu tillaga um að vinna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 þar sem verslunar- og þjónustusvæði á lóð við Álfaskeið 113 - 115 verði breytt í íbúðarsvæði.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 þar sem verslunar- og þjónustusvæði á lóð við Álfaskeið 113 - 115 verði breytt í íbúðarsvæði. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnin verði breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 þar sem verslunar- og þjónustusvæði á lóð við Álfaskeið 113 - 115 verði breytt í íbúðarsvæði."