Aðalskipulag Miðbær-Hraun breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 252
25. maí, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 20.5.2010 að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 þar sem verslunar- og þjónustusvæði á lóð við Álfaskeið 113 - 115 er breytt í íbúðarsvæði.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 þar sem verslunar- og þjónustusvæði á lóð við Álfaskeið 113 - 115 er breytt í íbúðarsvæði, dags. 20.5.2010 verði auglýst skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."