Aðalskipulag 2005-2025, Hamranes og Vatnshlíðarhnúkur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1640
30. júní, 2010
Annað
Fyrirspurn
6. liður úr fundargerð SBH frá 22. júní sl. Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 04.05.2010 að opnu svæði til sérstakra nota við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk á svæði sem merkt er opið svæði til sérstakra nota "Í" á uppdrætti Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2005 - 2025. Jafnframt færast vesturmörk íbúðarsvæðis við Vatnshlíðarhnúk til austurs, mörk óbyggðs svæðis til norðurs og mörk svæðis Í til suðurs. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 28.05.2010. Lögð fram greinargerð sviðsstjóra dags. 01.06.2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að farið verði með tillöguna sem óverulega breytinga á aðalskipulagi, og hún send Skipulagsstofnunar til afgreiðslu skv. 2. mgr. 21. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að farið verði með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar hvað varðar opið svæði til sérstakra nota við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk dags. 04.05.2010 sem óverulega breytinga á aðalskipulagi, og hún send Skipulagsstofnunar til afgreiðslu skv. 2. mgr. 21. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.