Þrúðvangur 8, byggingarleyfi fyrir nýjan bílskúr.
Þrúðvangur 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 246
2. mars, 2010
Annað
Fyrirspurn
Ívar J. Arndal og Elín Helga Káradóttir sækja 09.02.10 um að byggja nýjan bílskúr í stað þess sem að fyrir er samkvæmt teikningum Karl Erik Rocksén dags. 08.02.10 Meðfylgjandi er samþykki nágranna á Þrúðvangi 10. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 24.02.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð bendir á að erindið krefst deiliskipulagsbreytingar og vísar í 1. mgr. 23. gr. skipulags- og byggingarlaga um heimild eiganda til að gera tillögu á eigin kostnað. Geri eigandi slíka tillögu skal athugun á skuggavarpi fylgja henni.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122987 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027731