Lækjargata 10 , deiliskipulagsbreyting.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 246
2. mars, 2010
Annað
Fyrirspurn
Hafliði Richard Jónsson sækir um leyfi til að breyta deiliskipulagi á Lækjargötu 10. Samkvæmt teikningum Hilmars Þórs Björnssonar dags. 03.12.09. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 15.12.2009 að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst 25.12.2009 og lauk athugasemdafresti 09.02.2010. Athugasemd barst. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svari við athugasemdum.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulags- og byggingarsviðs, samþykkir deiliskipulagið og að erindinu verði lokið samkvæmt 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Lækjargata - Hamar 1999, varðandi lóðina Lækjargötu 10, dags. 3.12.2009, sem auglýst var 28.12.2009 og lauk athugasemdafresti 09.02.2010 og að erindinu verði lokið samkvæmt 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."