Steinhella 12, byggingarstig og notkun
Steinhella 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 260
2. nóvember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Steinhella 12,er á byggingarstigi 1 en ekki séð annað en að það sé búið að fullbyggja húsið, sem er á iðnaðarsvæði. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 14.04.10 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 20.10.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra/eigendum skylt að sækja um fokheldisúttekt innan fjögurra vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra/eigendum skylt að sækja um fokheldisúttekt innan fjögurra vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 207182 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097584