Gjáhella 11, byggingarstig og notkun
Gjáhella 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 237
3. nóvember, 2009
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 7. október 2008 og fullbúið 7. apríl 2009. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 23.09.2009 eigendum og byggingarstjóra skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 21.10.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum og byggingarstjóra skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum og byggingarstjóra skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203404 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097608