Reykjavíkurvegur 52 og Flatahraun 1, hávaði frá atvinnurekstri
Reykjavíkurvegur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 231
11. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 31.07.2009, þar sem gerð er grein fyrir kvörtunum íbúa að Reykjavíkurvegi 52 og Flatahrauni 1 vegna hávaða frá bensín- og bílaþvottastöð á næstu lóð. Skýrt frá athugun Heilbrigðiseftirlitsins á málinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 05.08.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Með vísan til bréfs Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis beinir Skipulags- og byggingarráð því til lóðarhafa Reykjavíkurvegar 54 að snyrta til á lóðinni, og í samvinnu við lóðarhafa Reykjavíkurvegar 52 og Flatahrauns 1 gera ráðstafanir varðandi hávaða frá starfseminni gagnvart fjöleignahúsunum.