Eyrartröð 16, frystigámar.
Eyrartröð 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 231
11. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Borist hafa kvartanir frá nágrönnum vegna hávaða frá frystigámum á lóðinni, sem einkum er truflandi að næturlagi. Lögð fram umsögn heilbrigðisfulltrúa Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 13.07.2009 ásamt niðurstöðum hljóðmælinga dags. 28.07.2009. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.07.2009, sem vísaði því til kynningar í skipulags- og byggingarráði.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að fylgjast með framvindu málsins í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120346 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030791