Gjaldskrár á fræðslusviði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3296
25. ágúst, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi samþykkt fræðsluráðs frá 22. ágúst sl.: "Fræðsluráð samþykkir með öllum atkvæðum að hækka tekjuviðmið vegna viðbótarafsláttar leikskólagjalda um 5% til að mæta hækkun almennra kjarasamninga. Á næsta fundi ráðsins verði lögð fram gögn um það hvernig núverandi niðurgreiðslukerfi kemur út miðað við það kerfi sem áður var."
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hækka tekjuviðmið vegna viðbótarafsláttar leikskólagjalda um 5% til að mæta hækkun almennra kjarasamninga."