Glitvellir 37, frágangur á lóð
Glitvellir 37
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 230
7. júlí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur kvörtun frá íbúum Glitvalla 29 - 43 með tölvupósti dags. 03.06.2009 vegna frágangs á byggingarsvæði Glitvalla 37, sem notuð er fyrir birgðasvæði fyrir gáma. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 10.06.2009 lóðarhafa skylt að fjarlægja gámana innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 37/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu 01.07.2009 til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum gámanna skylt að fjarlægja þá innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við erindinu verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum gámanna skylt að fjarlægja þá innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við erindinu verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. 

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204354 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085267