Húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3438
30. júní, 2016
Annað
Fyrirspurn
0905095 - Húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði
Lögð fram samþykkt um húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði, sem samþykkt var í byggingarnefnd Hafnarfjarðar þann 07.12.1989 og bæjarstjórn 19.12.1989.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að leggja til við bæjarráð: "Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkir að fella úr gildi samþykkt bæjarstjórnar frá 19.12.1989 um húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði."
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætir á fundinn.
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir framlagða tillögu skipulags- og byggingaráðs.