Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting Sléttuhlíð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 239
1. desember, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 04.03.2009 að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar aukningu byggðar í Sléttuhlíð. Textabreyting. Skipulagstillagan var auglýst 24.08.2009 skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og lauk athugasemdafresti 09.10.2009. Athugasemdir bárust. Lögð fram endurskoðuð samantekt skipulags- og byggingarsviðs dags. 20.11.2009 á innkomnum athugasemdum og tillaga að svörum við þeim.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulags- og byggingarsviðs. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:   "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar aukningu byggðar í Sléttuhlíð dags. 04.03.2009 og að málinu verði lokið skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."