Krýsuvík deiliskipulag fyrir rannsóknarborholur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 239
1. desember, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga VSÓ ráðgjafar f.h. HS-Orku að deiliskipulagi svæðis fyrir rannsóknarborholur í Krýsuvík, dags. 24.11.2009 ásamt tillögu að matslýsingu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst samkv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi svæðis fyrir rannsóknarborholur í Krýsuvík dags. 24.11.2009 ásamt tillögu að matslýsingu verði auglýst skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."