Hörðuvellir/Reykdalsreitur, Ljósatröð, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 254
3. ágúst, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi fyrir svæði við Ljósatröð dags. 15.01.2009. Svæðið er innan deiliskipulags fyrir Hörðuvelli - Reykdalsreit, en þessum hluta þess var frestað. Deiliskipulagstillagan var auglýst 04.05.2009 - 02.06.2009 skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdafrestur rann út 16.06.2009. Athugasemdir bárust. Áður lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svari við innkomnum athugasemdum. Skipulags- og byggingarráð fól 07.07.2009 skipulags- og byggingarsviði að vinna áfram að málinu.
Svar

Þar sem úrvinnsla málsins hefur tafist samþykkir skipulags- og byggingarráð að tillagan verði auglýst að nýju skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.