Hörðuvellir/Reykdalsreitur, Ljósatröð, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 230
7. júlí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi fyrir svæði við Ljósatröð dags. 15.01.2009. Svæðið er innan deiliskipulags fyrir Hörðuvelli - Reykdalsreit, en þessum hluta þess var frestað. Deiliskipulagstillagan var auglýst 04.05.2009 - 02.06.2009 skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdafrestur rann út 16.06.2009. Athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 24.06.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svari við innkomnum athugasemdum.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna áfram að málinu.