Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 230
7. júlí, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga Péturs Jónssonar landslagsarkitekts dags. 15.02.2009 að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis Hauka að Ásvöllum ásamt skýringaruppdrætti. Borist hefur nýr uppdráttur dags. 02.04.2009. Tillagan var auglýst 04.05.2009 skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdafresti lauk 16.06.2009. Engin athugasemd barst.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið skv. 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Ásvalla, Haukasvæðis skv. uppdrætti  02.04.2009 og að málinu verði lokið skv. 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."