Kapelluhraun 2. áfangi geymslusvæði og deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1607
17. febrúar, 2009
Annað
Fyrirspurn
14. liður úr fundargerð SBH frá 10.febr. sl. Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að 2. áfanga iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni skv. uppdrætti skipulags- og byggingarsviðs dags. 08.02.2009. Skipulags- og byggingarráð samþykkir með 3 atkvæðum að senda deiliskipulagið með áorðnum breytingum í auglýsingu skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að deiliskipulagi 2. áfanga Kapelluhrauns dags. 08.02.2009 í auglýsingu skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Trausti Baldursson og Skarphéðinn Orri Björnsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Bæjarstjórn samþykkti tillögu ráðsins samhljóða með 11 atkv.