Titan Global ehf, lóð undir gagnaver
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1631
24. febrúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
11.liður úr fundargerð BÆJH frá 18.febr. sl. Tekið fyrir að nýju. Lögð fram drög að viljayfirlýsingu dags. 8. febrúar 2010 við Titan Global ehf um lóð undir gagnaver. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: " Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu milli Titan Global ehf og Hafnarfjarðarkaupstaðar dags. 8. febrúar 2010."
Svar

Lúðvík Geirsson tók til máls. Þá Haraldur Þór Ólason. Lúðvík Geirsson kom að andsvari. Haraldur Þór Ólason svaraði andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari við fyrri ræðu Haraldar Þórs Ólasonar. Haraldur Þór Ólason svaraði andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari öðru sinni. Jón Páll Hallgrímsson tók til máls. Gunnar Svavarsson tók til máls. Þá Lúðvík Geirsson.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.    Haraldur Þór Ólason gerði grein fyrir atkvæði sínu.